Til að reyna að gera HM félagsliða að góðum kosti fyrir félög ákvað FIFA að dæla peningum inn í mótið.
Til að setja hlutina í samhengi hefur Chelsea sem dæmi fengið 36,5 milljónir punda fyrir þáttöku sína í mótinu.
Chelsea er komið í 16 liða úrslit, þetta dugar til að borga fyrir nýjasta framherja félagsins.
Chelsea festi kaup á Liam Delap fyrir mót og hefur félagið nú unnið inn fyrir því, kostaði Delap 30 milljónir punda.
Félagið sem vinnur mótið fær í kringum 100 milljónir punda í sinn vasa og munar um minna fyrir félög sem taka þátt í þessari nýju útfærslu af mótinu.