Telegraph segir frá því að vandamál sé að koma upp í hendurnar á Thomas Frank stjóra Tottenham og hann þurfi að vera klókur þar.
Þannig vill Cristian Romero fara frá Tottenham og Atletico Madrid hefur áhuga á því að kaupa hann.
Telegraph segir að Tottenham vilji meira en 60 milljónir punda og enginn afsláttur verði gefin af þeim.
Telegraph segir stöðuna flókna og að Thomas Frank fái það verkefni að leyfa úr vandamálinu þegar æfingar hefjast að nýju.
Romero er einn mikilvægasti leikmaður Tottenham en Frank tók við þjálfun liðsins á dögunum.