Fyrrum knattspyrnustjórinn Kevin Keegan sigraði deilu við nágranna sína um að fella sjö tré sem ollu honum og þeim sem við hlið honum búa óþæginum í Chesire í Englandi.
Trén hafa valdið Keegan, sem stýrði Newcastle, Manchester City, Fulham og enska landsliðinu um stutt skeið, auk þess að leika með því sjálfur, vandræðum undanfarin ár. Þau voru stór og í afar slæm ástandi, í raun ónýt að sögn.
Þrátt fyrir mótmæli nágranna, sem búa spölkorn frá, fengu Keegan og nágrannarnir í hans götu leyfi frá sveitafélaginu til að fjarlæga þessi 50 ára gömlu tré. Fengu þau loforð um að það yrði gert innan tveggja ára, en var það sett sem skilyrði að gróðursetja önnur í staðinn.
Mótmælin snúa að því að mikið fuglalíf er sagt vera í trjánum. Þá hafi trén veitt skjól fyrir nærliggjandi hús. Einn mótmælandi spilaði fuglasöng í hátalara til að mótmæla.
Keegan og aðrir vilja meina að trén setji eigur þeirra í hættu. Hann flutti inn í hús sitt, sem inniheldur fimm svefnherbergi, í Chesire árið 2002.