Emi Martinez markvörður Aston Villa vill ólmur komast til Manchester United en óvíst er hvað gerist. Ben Jacobs segir frá þessu.
Ben Jacobs er virtur blaðamaður á Englandi en óvíst er hvað gerist á næstunni.
Blaðamaðurinn segir United ekki hafa tekið ákvörðun um framtíð Andre Onanan en vitað er að Ruben Amorim vill breyta til.
United vill hins vegar byrja á að styrkja aðrar stöður en Aston Villa þarf helst að selja leikmann á næstu dögum.
Villa þarf að laga bókhaldið og hafa horft til þess að losna við markvörðinn sem hefur ekki átt skap saman við Unai Emery stjóra Villa.