Shaun Wright-Phillips er í hættu á að verða gjaldþrota en skatturinn í Bretlandi hefur farið fram á það.
Wright-Phillips þénaði hressilega sem leikmaður en hann lék með Manchester City, Chelsea og QPR.
Hann spilaði 36 landsleiki fyrir Englands og var hluti af landsliðinu sem fór á HM í Suður-Afríku árið 2010.
Farið er fram á gjaldþrot en það getur verið vegna skulda við lánastofnanir eða við skattinn.
Samkvæmt gögnum hefur Wright-Phillips átt hlut í sex félögum en búið er að loka fimm þeirra, það sem eftir er skuldum vafið.
Wright-Phillips er 43 ára gamall en talsmaður hann segir málið í vinnslu, hann sé staddur í fríi og svari fyrir málið þegar hann kemur til baka.