Fabrizio Romano segir frá því að bakvörðurinn Rayan Ait-Nouri sé búinn að segja já við stórlið Manchester City.
Ait-Nouri var orðaður við City fyrst í síðustu viku en hann er einn af mikilvægustu leikmönnum Wolves.
Romano segir að Ait-Nouri sé búinn að segja já við City og munu frekari viðræður fara fram á næstunni.
Hann er sagður vera efstur á óskalista City fyrir næsta vetur en nú er mánuður þar til í að sumarglugginn opni.
Það væri áfall fyrir Wolves að missa Ait-Nouri en Matheus Cunha er farinn og er orðinn leikmaður Manchester United.