fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
433Sport

Hjólar í Florian Wirtz – „Hann leit út eins og lítill strákur á vellinum“

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 10. nóvember 2025 12:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gary Neville segir að Florian Wirtz sé orðinn áhyggjuefni og vandamál hjá Liverpool eftir 3-0 tap liðsins gegn Manchester City um helgina.

Liverpool hefur nú tapað fimm af síðustu sex deildarleikjum og er liðið í vandræðum bæði varnarlega og sóknarlega.

Wirtz, sem kom frá Bayer Leverkusen í sumar fyrir 116 milljónir punda, hefur átt erfitt uppdráttar í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur enn náð að skora mark eða koma með stoðsendingu í 11 leikjum og átti lítinn þátt í leiknum á Etihad.

Neville sagði í hlaðvarpi sínu að þolinmæðin væri að klárast. „Við höfum verið að fara mjúkt í gagnrýni á hann, sagt að hann sé ungur og þurfi að aðlagast nýju landi. En hann kostaði 120 milljónir punda, hann verður að standa upp og sýna eitthvað,“ sagði hann.

„Hann hefur augljóslega hæfileika og er tæknilega góður, en það var gjörsamlega keyrt yfir hann af Matheus Nunes og fleiri leikmönnum City. Hann leit út eins og lítill strákur á vellinum. Þetta er vandamál fyrir Liverpool.“

Neville sagði þó að Liverpool yrði að halda áfram að spila honum. „Þeir verða að finna leið til að byggja upp hörku og sjálfstraust hjá honum. Þeir verða að halda áfram en þeir verða að fá meira frá honum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Í vandræðum með að fjármagna verkefnið að nýjum heimavelli

Í vandræðum með að fjármagna verkefnið að nýjum heimavelli
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Sindri fer frá Keflavík til að styðja við kærustu sína í Svíþjóð

Sindri fer frá Keflavík til að styðja við kærustu sína í Svíþjóð
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Æltaði á leik í Meistaradeildinni en mætti á vitlausan leikvang

Æltaði á leik í Meistaradeildinni en mætti á vitlausan leikvang
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Rauf þögnina um martröð liðsfélaga síns

Rauf þögnina um martröð liðsfélaga síns
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Líklegastir til að ná Nunez aftur til Evrópu – Launin gætu flækt málið mikið

Líklegastir til að ná Nunez aftur til Evrópu – Launin gætu flækt málið mikið