fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
433Sport

Orri Hjaltalín ráðinn til starfa hjá Víking

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 28. október 2025 13:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orri Freyr Hjaltalín hefur verið ráðinn sem vallarstjóri hjá Knattspyrnufélaginu Víkingi.

„Við þekkjum afar vel til Orra nú þegar en hann hefur sinnt starfi vallarstjóra tímabundið frá því í apríl fyrr á þessu ári,“ segir á vef Víkings

Í starfi vallarstjóra ber Orri m.a. ábyrgð á allri verkstjórn vegna viðhalds valla og mannvirkja Víkings ásamt undirbúningi knattspyrnuvalla fyrir mótahald. Þá sinnir vallarstjóri daglegu eftirliti og umhirðu á íþróttasvæðum Víkings, þar með talið á grasvöllum, gervigrasvöllum og annarri aðstöðu Víkings utandyra.

Orri Hjaltalín, sem er 45 ára gamall, býr yfir langri reynslu af ýmsum störfum en hann sinnti starfi vallarstjóra fyrir Grindavík í tvö ár ásamt því að starfa við grunnskólakennslu í u.þ.b. 15 ár og við þjálfun yngri og eldri flokka í um 25 ár.

Orri býr einnig yfir afar langri reynslu sem knattspyrnuleikmaður og spannar hans ferill í meistaraflokki heil 23 ár, lengst af með Þór á Akureyri og Grindavík.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Forráðamenn United segja Bruno Fernandes segja ósatt

Forráðamenn United segja Bruno Fernandes segja ósatt
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona