fbpx
Mánudagur 10.febrúar 2025
433Sport

Arnar stoltur og glaður: Tekur við góðu búi en margt hægt að bæta – „Við verðum að vera hreinskilin með það“

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 16. janúar 2025 16:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Gunnlaugsson, nýr landsliðsþjálfari Íslands, er að vonum stoltur að vera kominn í sitt draumastarf. Hann ræddi við fjölmiðla í fyrsta sinn frá því hann tók við starfinu í dag.

„Þetta er stærsta starf sem þjálfari getur fengið, að þjálfa sína þjóð og vera undir naflaskoðun hjá öllum. Að standast þá pressu og lifa undir þeirri pressu. Ég tel mig til að hafa nægilega reynslu, ekki bara í fótboltanum heldur lífinu líka, til að takast á við hana,“ sagði Arnar við 433.is í Laugardalnum í dag.

Aðdragandinn að ráðningu Arnars var töluverður, en Freyr Alexandersson var einnig mikið í umræðunni. Arnar hættir sem þjálfari Víkings eftir frábært starf þar. Vann hann Íslandsmeistaratitilinn tvisvar, bikarinn fjórum sinnum og er búinn að koma liðinu í útsláttarkeppni í Sambandsdeildinni.

video
play-sharp-fill

„Ég var mikið í fríi þegar það var verið að ræða um þetta og var að fylgjast mikið með. Ég hélt mér utan við umræðuna. En það var alveg ljóst í mínum huga að ef áhugi væri fyrir hendi þyrfti að fara ákveðna leið, hafa samband við Víkingana mína og sjá hvað þeir hafa að segja. Blessunarlega hefur þessi skilnaður gengið mjög vel, sem skilnaðir gera almennt ekki. Það hafa allir aðilar höndlað vel það sem hefði getað orðið eldfimt ástand.

Víkingur er á frábærum stað í dag, sem ég er mjög stoltur og ánægður með. Þeir eru tilbúnir að taka næsta skref. Ég held það sé bara fullkominn tímapunktur til að slíta naflastrenginn strax. Þetta er  tilfinningaflóð og ég er ekkert feimin við að viðurkenna það að þetta er mikil sorg líka. Það er erfitt að fara úr umhverfi þar sem þér líður vel alla daga og þar sem fjölskyldan þín er,“ segir Arnar, en Sölvi Geir Ottesen, aðstoðarmaður Arnars, tekur við af honum í Víkinni.

Arnar gerði frábæra hluti í Víkinni. Mynd/Eyþór Árnason

Arnar var spurður út í það hvað hann þyrfti helst að ráðast í sem nýr þjálfari karlalandsliðsins.

„Þegar maður fer að grúska í þessu á bak við tjöldin höfum við ekki verið nægilega sterkir. Það er ekkert flóknara en það. Við höfum átt móment í leikjum og góða leiki inn á milli en það er til dæmis sturluð staðreynd að okkur hefur ekki tekist að vinna tvo leiki í röð í undankeppnum í mörg ár. Ég er mikið fyrir að vinna í staðreyndum og það eru ákveðnar staðreyndir sem eru sláandi. Það eru mörg smáatriði sem þarf til að gera okkur að góðu liði. Spila leik hér heima og takast á við þær tilfinningar, fara upp í flugvél og mæta til dæmis Úkraínu þremur dögum seinna. Ég er vanur þessu umhverfi í Víkinni og það eru ákveðnar vinnureglur sem ég er vanur að vinna eftir sem ég mun innleiða hér hjá KSÍ.“

Jóhann Berg
Mynd: DV/KSJ

Arnar undirstrikaði mikilvægi þesssarar ráðningar í viðtali á dögunum, áður en hann tók við. Er það til að mynda vegna gæðanna í hópnum en það eru fleiri ástæður.

„Við verðum að vera hreinskilin með það að því lengra sem líður frá því að við komumst á stórmót, allir peningarnir sem fylgja því og hvað við getum stækkað okkur, stutt við félagsliðin, grasrótarstarfið, þess vegna sagði ég að þetta væri svo mikilvæg ráðning út frá því. Þú þarft alltaf að taka skref fram á við en undanfarin fimm ár höfum við aðeins staðnað af ýmsum ástæðum. En undanfarin tvö ár finnst mér þetta hafa farið aðeins í rétta átt aftur.“

Fyrsta verkefni Arnars verður umspil um að halda íslenska liðinu í B-deild Þjóðadeildarinnar gegn Kósóvó í mars en svo tekur við undankeppni HM næsta haust.

„Ég tel það mjög raunhæft (að komast á HM). Kannski ekki að vinna riðilinn en að ná öðru sæti. Þá ertu komin í bikarúrslitaleiki í umspilinu og ég er mjög vanur því,“ sagði Arnar.

Ítarlegra viðtal við Arnar er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Allt sem Ronaldo segir í viðtölum er satt

Allt sem Ronaldo segir í viðtölum er satt
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Jafnaði ótrúlegt met um helgina – Ósigrandi á útivelli

Jafnaði ótrúlegt met um helgina – Ósigrandi á útivelli
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Ummæli Guardiola vekja athygli: ,,Velkominn í ensku úrvalsdeildina“

Ummæli Guardiola vekja athygli: ,,Velkominn í ensku úrvalsdeildina“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Búinn að skora jafnmörg mörk hjá nýja liðinu og hann gerði á tveimur tímabilum í Manchester

Búinn að skora jafnmörg mörk hjá nýja liðinu og hann gerði á tveimur tímabilum í Manchester
433Sport
Í gær

Staða landsliðsins skoðuð – „Við eigum meiri möguleika með Arnar“

Staða landsliðsins skoðuð – „Við eigum meiri möguleika með Arnar“
433Sport
Í gær

Lengjubikarinn: Patrick með þrennu fyrir Val – Blikum mistókst að vinna

Lengjubikarinn: Patrick með þrennu fyrir Val – Blikum mistókst að vinna
433Sport
Í gær

Ummæli fyrrum leikmanns Arsenal vekja athygli – Telur að stuðningsmenn muni láta Arteta heyra það

Ummæli fyrrum leikmanns Arsenal vekja athygli – Telur að stuðningsmenn muni láta Arteta heyra það
433Sport
Í gær

Aron viðurkennir að hafa ætlað sér stærri hluti – „Það er mesta pressan þarna, það er bara staðreynd“

Aron viðurkennir að hafa ætlað sér stærri hluti – „Það er mesta pressan þarna, það er bara staðreynd“
Hide picture