Nýliðar Sunderland í ensku úrvalsdeildinni reyna nú að sækja sér nýjan markvörð fyrir átökin í deild þeirra bestu. Um er að ræða Marcin Bulka hjá franska liðinu Nice.
Pólverjinn verður samningslaus eftir ár og hefur ekki gengið að endursemja við hann. Nice er því til í að selja hann í sumar og hafa félög eins og Galatasaray, Manchester United og Monaco sýnt áhuga.
Sunderland hefur hins vegar sett allt á fullt og vonast til að hafa betur í baráttunni um hinn 25 ára gamala Bulka.
Anthony Patterson varði mark Sunderland er liðið fór upp úr B-deildinni á síðustu leiktíð en gæti þurft að sætta sig við bekkjarsetu í úrvalsdeildinni ef nýr markvörður mætir á svæðið.
Bulka var hjá yngri liðum Chelsea á sínum tíma og svo í þrjú ár hjá PSG, þar sem hann var þó mest annars staðar á láni.
🚨🔴⚪️ EXCL: Sunderland open talks to sign Polish goalkeeper Marcin Bulka as part of their ambitious project.
Bulka has been approached by deveral clubs this summer but #SAFC are now in active talks with OGC Nice. pic.twitter.com/Th0vMKfP1C
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 25, 2025