Marcus Rashford sóknarmaður Manchester United er með framtíðina í lausu lofti en nýtur lífsins á meðan.
Rashford er mættur til Frakklands og nýtur lífsins á St Tropez þar sem ríka og fræga fólkið nýtur sín.
Ensk blöð vekja athygli á því að mikið af konum hafi verið í kringum enska landsliðsmanninn og nú upppljóstra þau um ástarsamband hans.
Ný kærasta hans er Jaki Palm sem kemur frá Svíþjóð en hún er atvinnukona í padel sem er orðin virkilega vinsæl íþrótt um allan heim.
Palm býr til Dubai þar sem hún kynntist Rashford í apríl þegar hann var í meðhöndlun vegna meiðsla aftan í læri.
Þau eru sögð nú vera afar náin. Rashford var á láni hjá Aston Villa seinni hluta tímabilsins en snýr aftur til United en er til sölu.
Umboðsmaður Rashford hefur fundað með Barcelona en óvíst er hvort spænska félagið láti til skara skríða.