fbpx
Sunnudagur 02.nóvember 2025
433Sport

Rekinn eftir að hafa verið settur til hliðar af Amorim

Victor Pálsson
Laugardaginn 31. maí 2025 20:21

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United hefur staðfest það að maður að nafni Andreas Georgson sé búinn að yfirgefa félagið.

Þetta er maður sem Erik ten Hag fékk til félagsins á sínum tíma en hann sá um föst leikatriði aðalliðsins.

Ruben Amorim er í dag stjóri United en hann virðist hafa lítinn áhuga á að halda Georgson sem var settur í varahlutverk í nóvember.

Amorim ákvað að ráða inn Carlos Fernandes eftir komu til félagsins í nóvember og missti Georgson sína stöðu en hefur þó áfram starfað fyrir félagið undanfarna mánuði.

Nú hefur United tekið ákvörðun um að Georgson verði látinn fara en hann hefur starfað hjá félögum eins og Arsenal, Brentford og Southampton.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola líkir enska boltanum við NBA – Þetta er ástæðan

Guardiola líkir enska boltanum við NBA – Þetta er ástæðan
433Sport
Í gær

„Það léttir á öllu, það er bara svart og hvítt“

„Það léttir á öllu, það er bara svart og hvítt“