Fyrrum knattspyrnumaðurinn Landon Dovovan vakti mikla athygli um helgina en hann starfar sem sérfræðingur FOX Sports yfir EM í Þýskalandi.
Donovan er þekktastur fyrir tíma sinn hjá LA Galaxy í heimalandi sínu, Bandaríkjunum. Hann var hins vegar tvisvar sinnum lánaður þaðan til Everton í ensku úrvalsdeildinni og spilaði hann einnig með þýsku stórliðinum Bayern Munchen og Bayer Leverkusen.
Þá spilaði fyrrum sóknarmaðurinn 157 landsleiki fyrir hönd Bandaríkjanna.
Það er óhætt að segja að margir hafi verið furðu lostnir á útliti hans á skjánum um helgina og þá aðallega hári hans, sem er vægast sagt athyglisvert.