fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
433Sport

Kroos hringdi í lækni vegna drykkju – ,,Ástandið mátti ekki versna“

Victor Pálsson
Sunnudaginn 15. desember 2024 21:32

Toni Kroos. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Toni Kroos, fyrrum leikmaður Bayern Munchen, leitaði í vínið eftir leik liðsins við Chelsea árið 2012.

Um var að ræða úrslitaleik Meistaradeildarinnar en Bayern tapaði leiknum í vítaspyrnukeppni gegn enska liðinu.

Kroos átti erfitt með sjálfan sig eftir þetta tap og leitaði í áfengið en sem betur fer fyrir hann þá komust þær fréttir ekki á forsíðurnar á þeim tíma.

,,Ég var ekki í mínu besta ástandi þarna en það var ástæða fyrir því. Ég man þegar eiginkona mín kom að mér og sagði einfaldlega að við gætum ekki meira, að nú þyrfti að hringja á lækni,“ sagði Kroos.

,,Ímyndið ykkur ef þetta hefði komist í blöðin á þessu tíma, að ég væri að hringja í lækni því ég drakk of mikið.“

,,Ég þurfti útkomuleið vegna sársaukans. Ég hringdi sjálfur í lækni að lokum því ástandið mátti í raun ekki versna.“

Kroos var mjög sigursæll leikmaður á sínum ferli en hann hefur í dag lagt skóna á hilluna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Tveir ungir leikmenn svöruðu Amorim á Instagram – Eyddu báðir þessum færslum síðar

Tveir ungir leikmenn svöruðu Amorim á Instagram – Eyddu báðir þessum færslum síðar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Sjáðu myndbandið – Bruno Fernandes brjálaður í leikslok

Sjáðu myndbandið – Bruno Fernandes brjálaður í leikslok