fbpx
Sunnudagur 18.maí 2025
433Sport

Tók Sancho 49 mínútur að jafna árangur sinn frá tíma sínum hjá United

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 22. september 2024 08:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jadon Sancho hefur lagt upp tvö mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum með Chelsea, Sancho lagði upp eitt í 3-0 sigri Chelsea á West Ham í gær.

Sancho kemur til Chelsea eftir mjög erfiða tíma hjá Manchester United þar sem hann fann ekki taktinn.

Það tók Sancho sjö mánuði að leggja upp tvö mörk fyrir Manchester United eftir að hann kom til félagsins árið 2021. Þetta gerði hann á 49 mínútum með Chelsea.

Sancho lagði fyrst upp mark í febrúar þegar United vann sigur á Leeds en þá lagði Sancho upp tvö í sama leiknum.

Stuðningsmenn Chelsea eru spenntir fyrir innkomu Sancho sem kemur á láni en Chelsea þarf að kaupa hann næsta sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Guardiola hundfúll og öfundar United og Tottenham – ,,Höfum barist gegn þessu í níu ár“

Guardiola hundfúll og öfundar United og Tottenham – ,,Höfum barist gegn þessu í níu ár“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Brynjar tjáir sig um þann umdeilda sem er sagður hata Íslendinga – ,,Hann var kannski í einhverju stríði“

Brynjar tjáir sig um þann umdeilda sem er sagður hata Íslendinga – ,,Hann var kannski í einhverju stríði“
433Sport
Í gær

Arnar um að velja ekki Gylfa – „Ég hef ekkert rætt við hann“

Arnar um að velja ekki Gylfa – „Ég hef ekkert rætt við hann“
433Sport
Í gær

Nýr landsliðshópur Arnars vekur athygli: Anton Ari fær kallið – Albert og Aron Einar með

Nýr landsliðshópur Arnars vekur athygli: Anton Ari fær kallið – Albert og Aron Einar með