
Conor Gallagher virðist vera á förum frá Chelsea í sumar og samkvæmt fréttum er hann sjálfur spenntur fyrir því að fara til Spánar.
Gallagher spilaði stórt hlutverk með Chelsea á síðustu leiktíð og bar oft á tíðum fyrirliðabandið. En hann á ár eftir af samingi sínum og svo virðist sem hann verði seldur í sumar. Chelsea þarf að rétta sig af gagnvart FFP fjárhagsreglunum og spilar það inn í.
Miðjumaðurinn hefur til að mynda verið orðaður við Tottenham og Aston Villa en einnig spænska stórliðið Atletico Madrid.
Sjálfur er Gallagher spenntur fyrir því að skipta yfir til spænsku höfuðborgarinnar. AS, miðill þar í landi, segir hann hafa rætt við Kirean Trippier, liðsfélaga sinn hjá enska landsliðinu, um lífið hjá félaginu. Trippier var þar áður en hann fór til Newcastle og talar vel um félagið og borgina.
Gallagher er heillaður eftir samtalið við Trippier og kemur það fram í ítalska miðlinum Tutto Mercato að hann vilji nú ólmur komast til Atletico Madrid.