Fótbolti.net fjallar um málið. Aðstoðardómarinn sem um ræðir er að stíga sín fyrstu skref í dómgæslu og var ekki með allar reglur á hreinu. Hljóp hann til að mynda alla hliðarlínuna en ekki bara þann helming sem hann átti að hlaupa sem línuvörður.
Eftir tíu mínútna leik var hringt í KSÍ þar sem bæði lið kröfðust þess að skipt yrði um aðstoðardómara. Langt hlé tók við en svo fór að Gunnar Oddur Hafliðason, Bestu deildardómari, tók við flagginu.
„Við hefðum viljað fá fyrstu 15 mínúturnar spilaðar aftur. Ég hef eiginlega aldrei séð svona á öllum mínum árum í kringum fótbolta sem er staðfest með því að leikurinn er stöðvaður. Auðvitað skiljum við að allir verða einhvern tímann að eiga sinn fyrsta leik en allir þurfa þó að fá verkefni við hæfi. Það er augljóslega eitthvað sem klikkaði hjá sambandinu við framkvæmd þessa leiks og okkur þótti vinnubrögðin mjög skrítin,“ segir Hallgrímur Dan Daníelsson, þjálfari KH, við Fótbolta.net.
Magnús Már Jónsson, dómarastjóri KSÍ, ræddi málið einnig við Fótbolta.net.
„Við þurfum alltaf að fjölga dómurum. Í þessu tilfelli var það óreyndur dómari sem fór á leikinn og hann var að taka sinn fyrsta leik. Hann er búinn að sitja námskeið hjá okkur og fá aðstoðardómarafyrirlestur. Hann sagðist hafa spilað í áhugamannadeild í Póllandi og líka spilað hér. Þetta höfum við gert í gegnum tíðina því þetta er svo ótrúlega mikið magn leikja sem við erum að manna,“ sagði Magnús meðal annars en dómarinn sem um ræðir ætlar ekki að gefast upp og fræða sig betur.