fbpx
Sunnudagur 11.maí 2025
433Sport

Sævar lýsir augnablikinu þegar Gylfi kom inn á í gær – „Ég er þvílíkt ánægður fyrir hans hönd“

Helgi Fannar Sigurðsson
Laugardaginn 23. september 2023 09:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sævar Atli Magnússon, leikmaður Lyngby, segir það hafi verið einstök stund þegar Gylfi Þór Sigurðsson mætti aftur á völlinn í gær.

Gylfi var að spila sinn fyrsta knattspyrnuleik í 852 daga en hann kom einmitt inn á fyrir Sævar í leik Lyngby gegn Vejle í gær.

„Þetta var bara geðveikt. Ég er þvílíkt ánægður fyrir hans hönd. Maður hefur séð það á æfingum undanfarnar tvær vikur að hann er að vaxa og verða betri með hverjum deginum. Hann mun verða þvílíkt mikilvægur fyrir okkur,“ sagði Sævar við 433.is eftir leik í gær.

video
play-sharp-fill

„Maður horfði á hann þegar maður ólst upp og þetta var besti leikmaður okkar Íslendinga. Nú er ég búinn að spila með Alfreði Finnbogasyni með félagsliði og svo kemur Gylfi. Þetta er hálf súrealískt. Ég mun reyna að nýta þetta til hins ítrasta og reyna að læra af honum. Hann er að gefa mikið af sér og það er geðveikt að fá hann inn.“

Næst vill Sævar auðvitað spila með Gylfa í íslenska landsliðinu.

„Vonandi. Ég veit að það er markmiðið hjá honum og ég held hann ætli sér að slá þetta markamet. Ef hann heldur áfram að spila verður hann alltaf í landsliðinu.“

Ítarlegt viðtal við Sævar má nálgast í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Besta deildin: Valur skoraði sex – Eiður Gauti með tvennu

Besta deildin: Valur skoraði sex – Eiður Gauti með tvennu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Lengjudeildin: Svakaleg dramatík í Grindavík – Njarðvík skoraði fimm

Lengjudeildin: Svakaleg dramatík í Grindavík – Njarðvík skoraði fimm
433Sport
Í gær

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton
433Sport
Í gær

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur
Hide picture