fbpx
Föstudagur 19.september 2025
433Sport

Myndbandið vakti heimsathygli: Stjarnan lenti í ótrúlegum hremmingum er hún tók upp persónulega kveðju – Nú sér heimurinn eiginkonu hans fáklædda

433
Mánudaginn 27. mars 2023 14:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andreas Brehme, fyrrum at­vinnu og lands­liðs­maður í knatt­spyrnu kom sér heldur betur í klandur þegar að hann var að taka upp per­sónu­lega af­mælis­kveðju á dögunum. Kveðjan, sem hefur farið eins og eldur um sinu um heims­byggðina, varð helst til of per­sónu­leg þegar að eigin­kona Brehme labbaði á nær­buxunum einum klæða inn í myndina.

Þessi 62 ára gamli fyrrum heims­meistari með lands­liði Þýska­lands gefur kost á því að senda per­sónu­legar mynd­bands­kveðjur til að­dá­enda sinna í gegnum síðuna Memmo.me. Slík þjónusta hefur verið að ryðja sér rúms meðal al­mennings undan­farin ár.

Einn daginn var Brehme að taka upp eina slíka kveðju, á heimili fjöl­skyldunnar við Garda vatn á Ítalíu, þegar að konan hans gengur fáklædd inn í mynda­rammann. Fát kom á Brehme í kjöl­farið og í óða­gotinu slæmdi hann fingrinum á senda takkann og kveðjan því farin til þess sem hún var pöntuð fyrir.

Þýski vef­miðillinn Bild leitaði við­bragða hjá Brehme og eigin­konu hans við því að kveðjan skyldi fara svona frá þeim en þau sáu spaugi­legu hliðina á þessu öllu saman.

„Hvað er að þessu?“ svaraði eigin­kona Brehme, blaða­manni Bild. „Þið gætuð séð mig nakta vera að skipta um föt á ströndinni eða nakta í sauna. Við hlægjum bara að þessu og ég stríði Andreas vegna þessa, kalla hann minn helsta sam­fé­lags­miðla­sér­fræðing.“

Andreas tekur í svipaðan streng og eigin­kona sín.

„Nú veit allur heimurinn hversu flotta eigin­konu ég á. Þetta átti náttúru­lega aldrei að fara svona en núna hlægjum við að þessu. Í fram­tíðinni væri kannski best ef hún sæi um mynda­tökuna þegar að ég tek upp kveðjur.“

Mynd: Skjáskot

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Ein besta knattspyrnukona heims sagði takk en nei takk við gylliboði

Ein besta knattspyrnukona heims sagði takk en nei takk við gylliboði
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Messi að skrifa undir

Messi að skrifa undir
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Strákarnir okkar standa í stað eftir tvo frábæra leiki

Strákarnir okkar standa í stað eftir tvo frábæra leiki
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Leikmaður Newcastle hreinskilinn er hann ræddi skipti Isak til Liverpool

Leikmaður Newcastle hreinskilinn er hann ræddi skipti Isak til Liverpool
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Vangoldin laun ástæða fyrir skyndilegu brotthvarfi Guðjóns frá Akureyri – „Ekki staðið við það“

Vangoldin laun ástæða fyrir skyndilegu brotthvarfi Guðjóns frá Akureyri – „Ekki staðið við það“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Henry greinir það sem Gyokeres verður að laga – Segir að þetta þurfi að lagast svo Arsenal vinni titla

Henry greinir það sem Gyokeres verður að laga – Segir að þetta þurfi að lagast svo Arsenal vinni titla