Áhrifavaldurinn Ivana Knoll sló í gegn fyrir tæpu ári síðan á HM í Katar. Öðlaðist hún þar miklar vinsældir á samfélagsmiðlum sem enn eru til staðar, en hún er með meira en 3 milljónir fylgjenda þar.
Knoll studdi Króatíu dátt í Katar og vakti athygli fyrir ansi léttan klæðaburð í landi þar sem það þykir ekki æskilegt.
Hún birtir reglulega djarfar myndir og birti hún eina slíka á dögunum.
Myndina tók Knoll í baði en hún er í fríi í Dúbaí þessa stundina.
Hér að neðan má sjá myndina sem um ræðir.