Heitar umræður hafa skapast á meðal íslenskra knattspyrnuáhugamanna á samfélagsmiðlinum Twitter (X) í kjölfar þess að Marcus Rashford fékk rautt spjald í leik Manchester United gegn FC Kaupmannahöfn í kvöld.
Staðan í leik liðanna, sem er liður í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu, er 2-2 í hálfleik en var hún 0-2 fyrir United þegar Rashford fékk spjaldið fyrir afar litlar sakir. Dómarinn notaðist við VAR áður en það var dæmt og má sjá atvikið hér.
Hér að neðan má sjá umræðuna sem hefur skapast á Twitter hér heima.
Af hverju fengum við ekki að sja þetta í enn meira slow motion svona svo að það sé hægt að kæra Rashford fyrir líkamsárás?
— Daníel (@danielmagg77) November 8, 2023
Ég veit ekki hvort þetta hafi verið rætt áður en þetta VAR dæmi er að eyðileggja fotbolta
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) November 8, 2023
Hvað er Neestrup eiginlega búinn að borga dómurunum??
— Vilhjálmur Hallsson (@Vilhjalmurfreyr) November 8, 2023
Þetta leit bara of vel út, það var eitthvað bogið við þetta og þá verða Man U Man U og allt er eins og það á að vera.
— Þórður Helgi Þórðar (@Doddilitli) November 8, 2023
Þægilegasta kvöld í langan tíma eyðilagt á mettíma af enn einu helvítis ruslinu sem fær borgað fyrir að dæma fótbolta.
— Hrannar Björn (@hrannarbjorn) November 8, 2023
Fótbolti með VAR er game over, því miður.
— Eysteinn Þorri (@eysteinnth) November 8, 2023
Það er allt sem heitir common sense farið út úr leiknum. Hvað halda menn að gerist þegar dómari horfir á eitthvað 80x í hægri endursýningu? Enginn ásetningur í þessu, algjör óheppni, aldrei rautt spjald. Burtu með þetta VAR drasl.
— Arnar Sveinn (@arnarsveinn) November 8, 2023
Það er ekki bara PL … Þetta er orðið ALLTOF augljóst 🤣🤣🤣🤣
— Sveinbjörn Bergmann (@SvenniMar) November 8, 2023
Þetta ætlar engan endi að taka. Maður er löngu hættur að pirra sig á þessu kjaftæði. https://t.co/eT95oHDie8
— Hrannar Björn (@hrannarbjorn) November 8, 2023
ManUtd gegn UEFA. Séð þetta áður.
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) November 8, 2023
Hahahahaahahahaha jaherna hér HVAÐA DÓMUR ER ÞETTA OG HVERNIG GETUR ÞETTA DÓMARARUSL FARIÐ Í SKJÁINN OG HUGSAÐ JA ÞETTA ER RAUTT JA EINMITT LÍKLEGT DAGSINS
— Sigurđur Gísli (@SigurdurGisli) November 8, 2023