Ensk knattspyrnustjarna heillaði ekki fyrirsætu þegar þau nutu ásta, hann fór ekki úr sokkunum og fékk það ansi snemma.
Fyrirsætan kemur fram í viðtali við enska götublaðið Daily Star en vill ekki láta nafn síns getið.
Hún segist hafa rekist á knatspyrnustjörnuna í sumarfríi og hann hafi heillast af því að hún var nokkuð eldri en hann.
„Hann var mjög feimin og kunni ekkert að koma fram við konu,“ segir þessi fyrirsæta í viðtalinu.
„Ég er aðeins eldri en hann og ég fann það að það kveikti aðeins í honum. Um leið og við fórum upp á herbergi reif hann sig úr öllum fötunum en fór ekki úr sokkunum.“
Konan segist hafa haft gaman af því en þótti það skrýtið. „Ég skellti upp úr, hann lagðist bara í rúmið nakinn í sokkum.“
Konan segir svo frá því hvernig kynlífið var. „Hann bað mig að koma ofan á sig, hann vildi engan forleik sem var skellur.“
„Kynlífið var ekki mjög gott, hann fékk það á örfáum mínútum. Ég er ekki viss um að styrktaraðilar hans væru sáttir með svona frammistöðu.“
Þau héldu sambandi í nokkrar vikur eftir það en hún sleit öllu sambandi eftir að hann neitaði henni um miða á leik hjá sér.