Lögreglumaður mætti á skrifstofu Þróttar á dögunum og tilkynnti félaginu að búið væri að kaupa flugmiða fyrir Isaac Kwateng og til stæði að flytja hann af landi brott þann 16. október næstkomandi.
Fjallað er um málið á heimasíðu Þróttar þar sem fram kemur að félaginu þyki afskaplega leitt að tilkynna að enn einn steinninn hafi verið lagður í götu hans.
„Isaac er enn í starfi vallarstjóra Þróttar og hefur verið frá byrjun árs 2022, ásamt því að vera leikmaður varaliðs meistaraflokks karla. Á sex mánaða fresti hefur félagið endurnýjað umsókn hans um dvalar- og atvinnuleyfi og einmitt núna er slík endurnýjun í gangi og beðið er niðurstöðu. Fram að þessu vorum við bjartsýn enda hafa engar forsendur breyst hvað vinnu hans varðar fyrir félagið,“ segir í tilkynningu Þróttar.
Þá er bent á að umsókn hans um íslenskan ríkisborgararétt sé enn óafgreidd en vonir standi til að hún verði tekin fyrir á Alþingi í desember.
„Okkur rennur blóðið til skyldunnar að upplýsa ykkur kæra samfélag um stöðu þessa máls. Ekki síst þar sem mörg hundruð ykkar komuð saman og sýnduð Isaac svo fallegan stuðning á Avis-vellinum í lok júlí síðastliðinn,“ segir í tilkynningunni á vef Þróttar. Þar segir enn fremur:
„Okkur þykir ótrúlegt að honum dugi ekki að borga hér skatta og vera virkur þátttakandi í samfélaginu. Í von um að réttlætið myndi sigra hefur Isaac helt sér í íslenskunám og er að taka bílpróf til að ná enn betri tengingu við samfélagið. Það er ótrúlega sárt að sjá að öll baráttan fyrir veru þessa góða manns hér hjá okkur hafi ekki skilað árangri. Takk fyrir alla manngæskuna kæra samfélag.“
Heimildin fjallaði um mál Isaacs á vef sínum í morgun en þar kemur fram að hann hafi verið rétt rúmlega tvítugur þegar hann kom til Íslands í janúar 2018 frá Gana. Þar er rætt við Jón Hafstein Jóhannsson, þjálfara SR, varaliðs Þróttar, sem fer hlýjum orðum um Isaac. „Hann er bara orðinn partur af þessari fjölskyldu sem Þróttur er,“ segir hann meðal annars.