fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
433Sport

Sádar halda áfram að láta til sín taka og tvær stjörnur til viðbótar eru á blaði – Verið að undirbúa læknisskoðun fyrir leikmann Liverpool

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 26. júní 2023 09:00

Firmino skorar fyrir Liverpool

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sádi-Arabar halda áfram að láta til sín taka á félagaskiptamarkaðnum en deildin þar í landi er stórhuga fyrir komandi tímabil.

Nokkrar stjörnur úr Evrópuboltanum eru þegar mættar í deildina og þá eru fleiri leikmenn á leiðinni.

Nú gæti Roberto Firmino orðið næsti leikmaður til að fara til Sádi-Arabíu.

Brasilíumaðurinn hefur verið hjá Liverpool undanfarin sjö ár en fer í sumar. Hann verður endanlega samningslaus um mánaðarmótin og getur því farið frítt.

Al Ahli á í viðræðum við leikmanninn og eru meira að segja að undirbúa læknisskoðun ef ske kynni að samningar náist við leikmanninn.

Þá er Al-Nassr, með Cristiano Ronaldo innanborðs, á eftir Marcelo Brozovic hjá Inter.

Króatinn á enn þrjú ár eftir af samningi sínum við Inter og staðan því aðeins flóknari en hjá Firmino.

Það er hins vegar talið líklegt að Inter sé að samþykkja um 20 milljóna punda tilboð og ákvörðunin um að fara til Sádi-Arabíu eða ekki er því leikmannsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Forráðamenn United segja Bruno Fernandes segja ósatt

Forráðamenn United segja Bruno Fernandes segja ósatt
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona