AC Milan vann stórleikinn á Ítalíu í dag er liðið spilaði við granna sína í Inter í fimmtu umferð.
Leikurinn var afar fjörugur og lauk með 3-2 sigri Inter þar sem Rafael Leao og Olivier Giroud gerðu mörk Milan.
Inter var að tapa sínum öðrum leik af fimm en Milan er taplaust í öðru sæti með 11 stig.
Napoli er á toppnum með betri markatölu eftir leik við Lazio síðar í kvöld sem vannst 2-1.
Fiorentina og Juventus áttust þá við og lauk þeim leik með 1-1 jafntefli.
Milan 3 – 2 Inter
0-1 Marcelo Brozovic
1-1 Rafael Leao
2-1 Olivier Giroud
3-1 Rafael Leao
3-2 Edin Dzeko
Lazio 1 – 2 Napoli
1-0 Mattia Zaccagni
1-1 Kim Min-jae
1-2 Khvicha Kvaratskhelia
Fiorentina 1 – 1 Juventus
0-1 Arkadiusz Milik
1-1 Christian Kouame