Ekkert gengur hjá FH í Bestu deild karla en þetta sögufræga félag er í krísu og breytingar í þjálfaramálum virðast engu breyta.
Eftir níu leiki í Bestu deildinni í sumar var ákveðið að reka Ólaf Jóhannesson, liðinu vegnaði ekki vel og hafði aðeins safnað 0,88 stigi að meðaltali í leik.
Slíkur árangur telst arfa slakur í Kaplakrika og var því ákveðið að reka einn sigursælasta þjálfara í sögu íslenska fótboltans.
Eiður Smári Guðjohnsen var ráðinn í hans stað en frá því að hann tók við hefur FH skútan sokkið dýpra. Undir stjórn Eiðs í Bestu deildinni hefur FH spilað sjö leiki og safnað 0,43 stigi að meðaltali í leik.
FH hefur aðeins skorað tvö mörk í þessum sjö leikjum en þau mörk komu í fyrstu tveimur leikjunum undir stjórn Eiðs. Síðan þá hefur liðið ekki skorað í fimm leikjum í röð og aðeins náð í eitt stig.
FH tapaði 0-3 gegn KA á heimavelli í gær og situr í tíunda sæti deildarinnar. Leiknir sem situr í ellefta sæti á tvo leiki til góða og getur með sigri í kvöld sett stórveldið FH í fallsæti.