fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
433Sport

Rekinn í fyrra og nú er barist um lyklana að húsinu hans – Hvaða stjarna hefur betur?

433
Sunnudaginn 3. júlí 2022 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

The Mirror fjallar um það í dag að þeir Frenkie de Jong og Erling Haaland séu nú þegar byrjaðir að etja kappi en ekki er það inni á vellinum.

De Jong er sagður vera að ganga í raðir Manchester United en forseti Barcelona hefur þó sagt að hann sé ekki til sölu.

De Jong vill vera áfram á Spáni samkvæmt forseta félagsins en margir miðlar halda því fram að leikmaðurinn hafi áhuga á að fara til Manchester.

Hjá Manchester City spilar Norðmaðurinn Haaland en hann gekk í raðir ensku meistaranna í sumarglugganum.

Samkvæmt Mirror þá eru leikmennirnir tveir að skoða sama húsið í Manchester og eru í harðri baráttu um að fá lyklana í sínar hendur.

Þetta hús er í eigu Ole Gunnar Solskjær en hann er að selja eftir að hafa verið rekinn frá Manchester United á síðustu leiktíð.

Teymi De Jong hefur sett sig í samband við Solskjær en Haaland mun að öllum líkindum fá glæsibýlið þar sem samband hans við landa sinn er mjög gott.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Karólína tjáir sig um sögusagnirnar og gefur sterkar vísbendingar

Karólína tjáir sig um sögusagnirnar og gefur sterkar vísbendingar
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Samtal Liverpool við enska landsliðsmanninn heldur áfram í vikunni

Samtal Liverpool við enska landsliðsmanninn heldur áfram í vikunni
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Valinn besti leikmaður liðsins en vill nú fara – Alls ekki hrifinn af nýja stjóranum

Valinn besti leikmaður liðsins en vill nú fara – Alls ekki hrifinn af nýja stjóranum
433Sport
Í gær

Óttast ekki að missa sæti sitt ef Williams kemur í sumar

Óttast ekki að missa sæti sitt ef Williams kemur í sumar