Embætti héraðssaksóknara er komið með mál Arons Einars Gunnarssonar og Eggerts Gunnþórs Jónssonar á sitt borð. Það er RÚV sem segir frá þessu,
Kolbrún Benediktsdóttir, varahéraðssaksóknari, staðfestir í samtali við RÚV að málið sé nú komið á borð héraðssaksóknara.
Íslensk kona lagði fram kæru hjá lögreglu síðasta haust og sakar Aron og Eggert um að hafa nauðgað sér í Kaupmannahöfn árið 2010. Segir konan að þeir hafi nauðgað sér eftir landsleik Íslands í Kaupmannahöfn.
Aron og Eggert sendu yfirlýsingar frá sér síðasta haust og hafna ásökunum konunnar. Lögregla hefur verið málið til rannsóknar. Ákærusvið lögreglu hefur sent málið til héraðssaksóknara.
Það er svo Héraðssaksóknari sem tekur ákvörðun um það hvort ákæra verði gefin út í málinu eða það látið niður falla.