fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Ronaldo skorar lítið en eiginkona hans er að slá í gegn utan vallar

Aron Guðmundsson
Miðvikudaginn 9. febrúar 2022 09:32

Georgina Rodriguez og Cristiano Ronaldo / GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það gengur lítið hjá Cristiano Ronaldo, sóknarmanni Manchester United þessa dagana innan vallar. Ronaldo varð á dögunum 37 ára og þurfti að bíta í það súra að vera á varamannabekk Manchester United í leik liðsins gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Ronaldo kom inn á sem varamaður á 68. mínútu fyrir Edinson Cavani en tókst ekki að setja mark sitt á leikinn. Ronaldo hefur nú spilað í fimm leikjum í röð án þess að skora og það jafnar met hans á knattspyrnuferlinum yfir spilaðan leiki án þess að skora mark.

Ronaldo var auðsjáanlega pirraður eftir leikinn er hann strunsaði til búningsherbergja án þess að þakka stuðningsmönnum Manchester United fyrir stuðninginn.

Ronaldo strunsaði til búningsherbergja eftir leik Manchester United og Burnley í gærkvöldi/ GettyImages

Á meðan að Ronaldo gengur erfiðlega innan valla er eiginkona hans Georgina Rodriguez að slá í gegn í nýjum raunveruleikaþáttum sem eru aðgengilegir á streymisveitunni Netflix. Nú hefur verið ákveðið að gera aðra seríu af þáttunum sem mun meðal annars sýna frá lífi þeirra í Manchester.

Samningurinn sem Georgina gerði við Netflix færir henni margar milljónir punda en spennandi tímar eru framundan hjá fjölskylunni. Georgina gengur með tvíbura og heimildarmaður The Sun segir Georginu líta á þetta sem frábært tækifæri til þess að sýna heiminum hver hún er í raun og veru.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Baunaði hressilega á fyrrum samstarfsmenn í sjónvarpinu: Var aldrei svona heppinn – ,,Gátu ekki dreift vatnsflöskum sín á milli“

Baunaði hressilega á fyrrum samstarfsmenn í sjónvarpinu: Var aldrei svona heppinn – ,,Gátu ekki dreift vatnsflöskum sín á milli“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Gætu neyðst til að selja vonarstjörnuna í sumar vegna fjárhagsvandræða

Gætu neyðst til að selja vonarstjörnuna í sumar vegna fjárhagsvandræða
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun