fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
433Sport

Enski boltinn: Manchester United nældi í þrjú stig gegn Brentford – Leikmenn vöknuðu í seinni

Helga Jónsdóttir
Miðvikudaginn 19. janúar 2022 22:03

Marcus Rashford, Anthony Elanga, Bruno Fernandes og Scott McTominay / Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brentford tók á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Leiknum lauk með 3-1 sigri United.

Það vantaði töluvert upp á leik Manchester United í fyrri hálfleik og var Brentford var hættulegra liðið til að byrja með. De Gea bjargaði gestunum nokkrum sinnum og hefðu heimamenn vel getað komist yfir. Inn fór boltinn ekki og markalaust var í hálfleik.

Ralf Rangnick las greinilega yfir sínum leikmönnum í hálfleik en þeir komu af meiri krafti út í seinni og var meira flæði í spilinu. Þeir uppskáru strax á 54. mínútu er Elanga kom Man. Utd yfir. Mason Greenwood tvöfaldaði svo foryustuna sjö mínútum síðar eftir flotta skyndisókn. Rashford komst einnig á blað en hann skoraði þriðja markið á 77. mínútu eftir stoðsendingu frá Bruno.

Ivan Toney minnkaði muninn fyrir Brentford á 85. mínútu en lengra komust heimamenn ekki og 3-1 niðurstaðan í kvöld.

Brentford 1 – 3 Manchester United
0-1 Anthony Elanga (´55)
0-2 Mason Greenwood (´62)
0-3 Marcus Rashford (´77)
1-3 Ivan Toney (´85)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Karólína tjáir sig um sögusagnirnar og gefur sterkar vísbendingar

Karólína tjáir sig um sögusagnirnar og gefur sterkar vísbendingar
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Samtal Liverpool við enska landsliðsmanninn heldur áfram í vikunni

Samtal Liverpool við enska landsliðsmanninn heldur áfram í vikunni
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Valinn besti leikmaður liðsins en vill nú fara – Alls ekki hrifinn af nýja stjóranum

Valinn besti leikmaður liðsins en vill nú fara – Alls ekki hrifinn af nýja stjóranum
433Sport
Í gær

Óttast ekki að missa sæti sitt ef Williams kemur í sumar

Óttast ekki að missa sæti sitt ef Williams kemur í sumar