fbpx
Þriðjudagur 28.október 2025
433Sport

Nýtt „hneyksli“ í Bretlandi tengt íslenskum stúlkum – Árið 2020 var Aníta einnig í fréttum fyrir símtal

Ritstjórn DV
Mánudaginn 29. ágúst 2022 10:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ensk götublöð loga nú í morgunsárið eftir að Davide Sanclimenti, sem nýverið sigraði Love Island með kærustu sinni Ekin-Su Cülcüloğlu, var myndaður fara í leigubíl með tveimur íslenskum konum í London í fyrrakvöld.

Samkvæmt The Sun heita íslenskur konurnar  Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir og Aníta Gunnarsdóttir. Þá er greint frá því að  Matthildur birti myndefni af Davide, 27 ára, í story á Instagram fyrr um kvöldið, en þau höfðu öll verið að horfa á bardaga með bresku raunveruleikastjörnunni og rapparanum KSI í O2 Arena.

Sjá einnig: Tvær íslenskar stúlkur í hringiðu meints Love Island-drama

Íslensku stelpurnar eru framan á forsíðu The Sun.

Aníta þekkir sviðsljósið hjá breskum blöðum en miðlarnir rifja það upp að hún var einnig í svipaðri hringiðu árið 2020 þegar hún átti í samskiptum við knattspyrnustjörnunnar Mason Greenwood og Phil Foden hér á landi.

Þá heimsótttu tvær íslenskar stúlkur hótel enska landsliðsins, þær Nadía Sif Líndal og Lára Clausen, og allt fór í háaloft vegna þess. Þrátt fyrir að Aníta hafi ekki heimsótt knattspyrnustjörnunnar varð símtal hennar þó umfjöllunarefni breskra miðla.

Hneykslið snerist um að Foden og Greenwood  buðu tveimur íslenskum stúlkum upp á hótelið sitt eftir leik Englands og Íslands á Laugardalsvelli. Í gangi voru strangar sóttvarnarreglur sem þeir brutu með því að fá stúlkurnar í heimsókn á Hótel Sögu.

Báðir voru reknir úr enska landsliðinu vegna málsins en Foden snéri aftur nokkru síðar en leikurinn við Íslands er eini landsleikur Greenwood.

Mason Greenwood leikmaður Manchester United er nú grunaður um nauðgun og ofbeldi.

Greenwood var handtekinn á síðasta ári fyrir heimilisofbeldi en er nú laus gegn tryggingu á meðan lögregla rannsakar mál hans. Framherjinn fær þó ekki að mæta á æfingar hjá Manchester sem hefur sett hann í bann. Er Greenwood grunaður um kynferðisbrot, heimilisofbeldi og líflátshótanir í garð unnust sinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Heimir Guðjónsson nýr þjálfari Fylkis

Heimir Guðjónsson nýr þjálfari Fylkis
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Útskýrir af hverju Harvey Elliott kemst ekki lengur í hóp

Útskýrir af hverju Harvey Elliott kemst ekki lengur í hóp
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Hermann Hreiðarsson tekur við Val

Hermann Hreiðarsson tekur við Val
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Fær ekki sparkið þó stuðningsmenn séu öskuillir

Fær ekki sparkið þó stuðningsmenn séu öskuillir
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum
Rekinn eftir dapurt gengi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Sagðir hafa fundað með Eiði Smára

Sagðir hafa fundað með Eiði Smára
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Allt á suðupunkti í Kaupmannahöfn: Krefjast þess að sjá meira af Íslendingnum – „Heiladauður fyrir að bíða svo lengi“

Allt á suðupunkti í Kaupmannahöfn: Krefjast þess að sjá meira af Íslendingnum – „Heiladauður fyrir að bíða svo lengi“
433Sport
Í gær

Beittur Höddi Magg vill senda nokkra einstaklinga á námskeið í skynsemi – „Fóru á taugum, hverju sem er um að kenna“

Beittur Höddi Magg vill senda nokkra einstaklinga á námskeið í skynsemi – „Fóru á taugum, hverju sem er um að kenna“
433Sport
Í gær

Frost og snjókoma í Laugardalnum á morgun

Frost og snjókoma í Laugardalnum á morgun