Darwin Nunez missti hausinn í leik Liverpool og Crystal Palace í gær sem fór fram í ensku úrvalsdeildinni.
Liverpool hefur byrjað tímabilið nokkuð erfiðlega og eftir 1-1 jafntefli í gær er liðið með tvö stig eftir tvo leiki.
Nunez reyndist skúrkurinn í gær en hann fékk beint rautt spjald í seinni hálfleik fyrir að skalla Joachim Andersen, leikmann Palace.
Nunez hefur nú beðist afsökunar á gjörðum sínum en hann gaf út stutta Twitter færslu.
Þar biður Úrúgvæinn alla í Liverpool afsökunar og heitir því að snúa sterkari til baka.
Apologies to Liverpool all ✋🏼
I’ll be back 🫡 pic.twitter.com/iszTdSAx2i
— Darwin Núñez (@Darwinn99) August 16, 2022