fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
433Sport

Allt vitlaust eftir að hún fór í síma vonarstjörnunnar í leyfisleysi – Sambandið brothætt eftir framhjáhald á Íslandi

433
Sunnudaginn 26. júní 2022 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vonarstjarnan Phil Foden sem leikur með Manchester City lenti í vandræðum í Grikklandi um helgina en hann er nú staddur í sumarfríi eins og margir aðrir leikmenn.

Myndband náðist af Foden og kærustu hans, Rebecca Cooke, þar sem þau rifust heiftarlega á ströndinni áður en sá fyrrnefndi stormaði að lokum burt í reiðiskasti.

Ástæðan fyrir rifrildinu er að Rebecca stalst í síma Foden á meðan hann skrapp í sjóinn og gerði hún það í leyfisleysi.

Rebecca hefur séð eitthvað í símanum og var virkilega reið en atvikið náðist upp á myndband sem var sent á enska miðla.

,,Heldurðu að ég sé fáviti?“ öskraði Rebecca á Foden í rifrildinu en öryggisverðir voru kallaðir á staðinn stuttu seinna.

,,Hann fór að synda og hún stalst í símann hans og snöggreiddist. Þau rifust heiftarlega á ströndinni áður en öryggisverðir blönduðu sér í máli,“ er haft eftir vitni í samtali við the Sun.

Foden stormaði burt en stuttu seinna hófst rifrildið aftur við bar staðarins á meðan öryggisverðir fylgdu þeim burt.

Það ríkir ekki mikið traust þarna á milli eftir að Foden hélt framhjá kærustu sinni í landsliðsferð með Englandi hér á Íslandi árið 2020.


Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Er þetta sterk vísbending um að hann verði sá fyrsti sem Slot fær til Liverpool?

Er þetta sterk vísbending um að hann verði sá fyrsti sem Slot fær til Liverpool?
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Opinbera hvers vegna Salah og Klopp rifust um helgina

Opinbera hvers vegna Salah og Klopp rifust um helgina
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Einum manni brá oft fyrir í svörum leikmanna Vals – „Það góða er að hann heldur sjálfur að hann sé með svo flottan stíl“

Einum manni brá oft fyrir í svörum leikmanna Vals – „Það góða er að hann heldur sjálfur að hann sé með svo flottan stíl“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Hæstánægður þrátt fyrir áhuga Manchester City – ,,Væri að ljúga ef ég myndi segja eitthvað annað“

Hæstánægður þrátt fyrir áhuga Manchester City – ,,Væri að ljúga ef ég myndi segja eitthvað annað“