Real Madrid er Evrópumeistari eftir sigur á Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í París í kvöld. Hér neðst í fréttinni má sjá hvað knattspyrnuáhugamenn á Íslandi höfðu að segja um leikinn.
Liðin þreifuðu fyrir sér fyrsta stundarfjórðunginn en Liverpool var meira með boltann. Eftir það fór Liverpool upp um gír og fékk Mohamed Salah tvö fín færi eftir rúman fimmtán mínútna leik. Skömmu síðar fékk Sadio Mane gott færi en tókst ekki að skora. Í bæði skiptin varði Thibaut Courtois vel í marki Real.
Liverpool var áfram betri aðilinn út fyrri hálfleikinn en undir lok hans kom Karim Benzema knettinum í netið. Mark hans var hins vegar dæmt af vegna rangstöðu en dómurinn var nokkuð umdeildur. Boltinn fór af Fabinho, leikmanni Liverpool, en Frakkinn var samt dæmdur rangstæður þar sem dómarar mátu það svo að Fabinho hafi ekki viljandi sent boltann.
Staðan í hálfleik var markalaus.
Seinni hálfleikur fór rólega af stað en á 59. mínútu geystust leikmenn Real Madrid fram völlinn. Endaði það með fyrirgjöf Federico Valverde á Vinicius Junior sem skoraði.
Í kjölfarið tók við kafli þar sem Liverpool sótti án afláts og skapaði sér töluvert af góðum færum. Courtois var hins vegar stórkostlegur í kvöld og átti hverja frábæra vörsluna á fætur annari.
Real fékk einnig tækifæri hinum megin á vellinum upp úr skyndisóknum og var Vinicius yfirleitt í aðalhlutverki þar. Brassinn var frábær í leiknum.
Real Madrid tókst að hægja vel á leiknum síðustu mínúturnar og leikurinn fjaraði aðeins út.
Lokatölur 1-0 fyrir Real Madrid sem vinnur sinn fjórtánda Evrópumeistaratitil.
Ef þú getur ekki skorað, þá áttu ekki skilið að vinna. Markmaðurinn er einn af 11
— Jón Kristjánsson (@nonnidk) May 28, 2022
Never scored a goal in any of 3 finals from open play … quadruple ye 😎
— Gary martin (@gazbov10) May 28, 2022
Real gátu ekki fokking neitt, ógeðslegir
— Sveinn Sig (@sveinnsig15) May 28, 2022
Cech 2012
— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) May 28, 2022
Salah að biðja um launahækkun.. þvílíka þvælan
— Tristan Máni (@TristanMani_69) May 28, 2022
Ég hef mjög gaman af biturleikanum frá Herði Magnússyni sem skilar sér yfir hafið.
— Jóhann Óli Eiðsson (@jedissson) May 28, 2022
Courtois einfaldlega ómannlegur í þessum leik. 😱
— Rikki G (@RikkiGje) May 28, 2022
Vantar Origi inn á.
— Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson (@thorkellg) May 28, 2022
Lifir fernan enþá hjá Liverpool?
— Nikola Djuric (@NikolaDejan) May 28, 2022
Thibaut Courtois leikurinn. Þetta var hann! 🤌🏻 pic.twitter.com/nOAo8zXmg3
— Runólfur Trausti Þórhallsson (@Runolfur21) May 28, 2022
HALA MADRID pic.twitter.com/D6o9O6LjK4
— Sigurđur Gísli (@SigurdurGisli) May 28, 2022
5 CL titlar
Virðingu Takk pic.twitter.com/VLfOl7K4ll
— Hörður S Jónsson (@hoddi23) May 28, 2022
Ef þú vinnur PSG, Chelsea, Man City & Liverpool þá áttu líklega skilið að vinna Meistaradeildina 🤷🏼♂️
— Gummi Ben (@GummiBen) May 28, 2022
Modric er einn besti miðjumaður sögunnar. Listamaður.
— Ingimar H. Finnsson (@ingimarh) May 28, 2022
Hérna. Er svona dómgæsla bara í lagi í stærsta leik ársins? Hvaða rugl er í gangi
— Jakob Helgi (@jakobhelgi) May 28, 2022
Litla þvælan! Það sést augljóslega að boltinn fer af Fabinho. Til hvers er VAR ef það á ekki að nota það?
— Engilbert Aron (@engilbertaron) May 28, 2022