A landslið kvenna kom saman í upphafi vikunnar fyrir tvo leiki í undankeppni HM 2023 sem fer fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Andstæðingar Íslands verða Hvíta Rússland og Tékkland.
Fyrri leikurinn fer fram á morgun gegn Hvíta Rússlandi. Leikurinn fer fram í Belgrad í Serbíu. Á föstudaginn ferðast liðið til Prag í Tékklandi þar sem síðari leikurinn fer fram þann 12. apríl.
Ísland er í öðru sæti riðilsins með níu stig eftir fjóra leiki. Auk Hvíta Rússlands og Tékklands eru Holland og Kýpur í riðli með Íslandi.
Sara Björk Gunnarsdóttir er mætti í verkefni landsliðsins en hún er að koma til baka eftir barnsburð. Sara var spurð að því í fréttamannafundi í gær hvort barnið hefði ekki verið velkomið með í ferðina en Ragnar Frank kom í heiminn í nóvember.
„Hann var velkominn með en pabbi hans fékk að vera með hann. Sonurinn er í góðum höndum í Rodez í Frakklandi með pabba sínum,“ sagði Sara í gær en Árni Vilhjálmsson unnusti Söru er atvinnumaður í Frakklandi líkt og Sara.
Á þessar spurningu furðar Berglind Ósk Guðmundsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins. „Afhverju leitast fjölmiðlar við að spyrja afrekskonur í íþróttum hvað verði eiginlega um börnin þeirra á meðan þær sinna risa verkefnum? Afhverju eru karlar ekki spurðir að því sama? Hélt við værum komin lengra,“ skrifar þingkonan á Twitter.
Afhverju leitast fjölmiðlar við að spyrja afrekskonur í íþróttum hvað verði eiginlega um börnin þeirra á meðan þær sinna risa verkefnum? Afhverju eru karlar ekki spurðir að því sama? Hélt við værum komin lengra.
— Berglind Ósk Guðmundsdóttir (@berglindosk7) April 6, 2022