Árni Vilhjálmsson lék allan leikinn með Rodez í tapi gegn Sochaux í frönsku B-deildinni í kvöld.
Sochaux komst í 2-0 í fyrri hálfleik og þannig fóru leikar.
Árni gekk til liðs við Rodez frá Breiðabliki í janúar.
Liðið er í sautjánda sæti deildarinnar með 32 stig, stigi fyrir ofan fallsæti.
Elías Már Ómarsson leikur í sömu deild með Nimes. Hann var þó ekki í leikmannahópi liðsins í 1-0 tapi gegn Ajaccio í kvöld.