Bæði Juventus og Barcelona hafa haft samband við Arsenal og hafa áhuga á því að krækja í Pierre-Emerick Aubameyang.
Framherjinn frá Gabon er í kuldanum hjá Mikel Arteta eftir ítrekuð agabrot hans.
Aubameyang er með rúm 300 þúsund pund á viku sem hefur flækt málið en Juventus og Barcelona vilja taka hann á láni.
Ljóst er að eitthvað gæti gerst um helgina en félagaskiptaglugginn lokar á mánudag.
Arsenal fagnar því að losna við Aubameyang af launaskrá en framherjinn frá Gabon er þekktur fyrir að raða inn mörkum.