Erling Braut Haaland hefur byrjað tímabilið vel með Dortmund en búist er við því að leikmaðurinn muni leita á ný mið næsta sumar.
Ýmsir klúbbar í Evrópu hafa áhuga á norska framherjanum en hann hefur sjálfur lítið tjáð sig um framtíð sína og einbeitt sér frekar að því að spila fótbolta.
Kappinn var spurður út í framtíðina eftir góðan leik hjá Dortmund í gær þar sem Haaland skoraði tvö mörk.
„Síðustu sex mánuði ákvað ég að segja ekkert af virðingu við Dortmund en nú er klúbburinn farinn að pressa á mig að taka ákvörðun,“ sagði Haaland við Viaplay.
„Ég vil bara spila fótbolta en þeir eru að pressa á mig að taka ákvörðun. Þetta þýðir að ég þarf að ákveða mig fljótlega.“
Erling Haaland: “Borussia Dortmund have started to put lot of pressure on me. They want me to decide now. And so… yeah, things will happen NOW. Even if I only wanted to focus on football and play football”. 🟡 #Haaland
Full interview ⤵️ @JanAageFjortoftpic.twitter.com/ZE8Bme8R0m
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) January 14, 2022