fbpx
Laugardagur 01.nóvember 2025
433Sport

Víkingar gera kröfu um hraðpróf og geta þá fjölgað áhorfendum í stúkunni

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 21. september 2021 13:10

Mynd/Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðningsmenn Víkings og Leiknis sem ætla sér að mæta á leikinn á laugardag í efstu deild karla þurfa að fara í hraðpróf.

Víkingar hafa tekið þá ákvörðun um að fjölga í sóttvarnarhólfum og þá þarf að gera kröfu um skimun vegna COVID-19.

Víkingur verður Íslandsmeistari með sigri á Leikni og því mikil eftirspurn í miða.

Yfirlýsing Víkings:
Í sumar hafa verið í gildi fjöldatakmarkanir og er þessi leikur engin undantekning. Nú þegar er orðið uppselt á leikinn miðað við tvö 500 manna hólf, en með eftirfarandi aðgerðum verður hægt að fjölga miðum og selja sérstaklega í stæði (en ekki í sæti).

Til þess að gera fleirum kleift að mæta á leikinn verður gerð krafa um að gestir 16 ára og eldri framvísi neikvæðri niðurstöðu COVID-19 hraðprófs. Þetta er gert til þess að sem flestir geti upplifað þá stemningu sem mun vera í Víkinni á laugardaginn og hvatt liðið okkar áfram. Börn fædd 2006 og síðar telja ekki í gildandi takmörkunum.

Hraðpróf, sem er ókeypis, er pantað í gegnum slóðina https://hradprof.covid.is/ og vekjum við athygli á að COVID-19 sjálfspróf er ekki nóg, heldur þarf að fara í hraðpróf á fimmtudag eða föstudag, þar sem prófið má ekki vera meira en 48 klst gamalt. Hraðpróf eru opin alla virka daga frá 08:00 til 12:00 og frá 12:45 til 20:00.

Verði leiknum frestað til sunnudags vegna veðurs er hraðpróf frá fimmtudeginum útrunnið. Miðasala á aukamiðum fer fram í miðasöluappinu Stubbi og hefst miðvikudaginn 22. september kl. 11:00.

Að gefnu tilefni er rétt að taka það fram, að sjái einhverjir þeirra sem hafa nú þegar keypt miða á leikinn sér ekki fært að uppfylla skilyrði um hraðpróf þá eiga þeir aðilar fullan rétt til endurgreiðslu og munu aðrir stuðningsmenn hafa færi á að kaupa þá miða sem losna vegna slíks. Þá er jafnframt rétt að taka það sérstaklega fram að aðrir miðar en þeir sem eru útgefnir í gegnum Stubb, eins og t.d. opnir miðar frá Ölgerðinni á leiki í Pepsi Max deildinni, munu ekki gilda á leikinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Auðmjúka stjarnan á Íslandi – „Er bara eins og gaur út sveitinni“

Auðmjúka stjarnan á Íslandi – „Er bara eins og gaur út sveitinni“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Hættur í fótbolta 27 ára og tekur algjöra U-beygju í lífinu

Hættur í fótbolta 27 ára og tekur algjöra U-beygju í lífinu
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Lammens gerir lítið úr lagi sem er sungið um hann – „Áður en ég verð nefndur í sömu setningu og hann“

Lammens gerir lítið úr lagi sem er sungið um hann – „Áður en ég verð nefndur í sömu setningu og hann“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Óskar Smári ráðinn þjálfari Stjörnunnar

Óskar Smári ráðinn þjálfari Stjörnunnar
433Sport
Í gær

Búist við að Rodgers geti fengið starf á Englandi innan tíðar

Búist við að Rodgers geti fengið starf á Englandi innan tíðar
433Sport
Í gær

Real Madrid öruggir á því að þeir hafi betur gegn Liverpool – Yrði áfall á Anfield

Real Madrid öruggir á því að þeir hafi betur gegn Liverpool – Yrði áfall á Anfield