Enska goðsögnin Paul Gascoigne hrósaði Jack Grealish fyrir frammistöður sínar á knattspyrnuvellinum í viðtali við Daily Mail. Hann gagnrýndi leikmanninn þó fyrir að hafa sokkana sína eins neðarlega og raun ber vitni á meðan hann spilar.
Grealish, sem er fyrirliði Aston Villa og leikmaður enska landsliðsins, hefur vakið athygli fyrir það að vera með sokkana sína fyrir neðan kálfa í leikjum. Sjálfur hefur leikmaðurinn sagt að það tengist hjátrú.
,,Jack Grealish er góður. Ég vildi bara að hann myndi toga fjandans sokkana upp og líta út eins og knattspyrnumaður! Hann er þó alltaf tilbúinn til þess að fá boltann, sem er gott,“ sagði Gascoigne.
Grealish er að sjálfsögðu á leið með Englendingum á Evrópumót landsliða sem hefst í vikunni. Sjálfur lék Gascoigne 57 landsleiki fyrir England á sínum tíma.