fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
433

Tómas Þór leggur til að Vanda fái hið minnsta ráð hjá Grétari

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 15. desember 2021 08:20

© Frétt ehf / Einar Ólason / E.Ól.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Starf yfirmanns knattspyrnumála hjá KSÍ hefur að einhverju leyti setið á hakanum síðasta árið. Arnar Þór Viðarsson er enn starfandi yfirmaður knattspyrnumála ásamt því að stýra A-landsliði karla.

Arnar hafði fengið mikið lof fyrir það hvernig hann byrjaði í starfi yfirmanns knattspyrnumála sem var nýtt af nálinni. Öll þau mál sem tengjast A-landsliði karla hafa svo verið í forgangi í ár og lítið hefur heyrst um hitt starfið.

Grétar Rafn Steinsson er atvinnulaus eftir að hafa starfið á skrifstofu Everton síðustu ár. Grétar sagði upp eftir að Rafa Benitez lét félagið losa sig við Marcel Brands yfirmann knattspyrnumála. Brands hafði starfað náið með Grétari sem sá meðal annars um að finna leikmenn fyrir Everton.

Eyþór Árnason/Fréttablaðið

Rætt var um yfirmann knattspyrnumála og Grétar Rafn í útvarpsþættinum Fótbolta.net á laugardag. „Hann er búinn að skapa sér sambönd víða og ég held að það sé klárt mál að hann sé að fara að fá tilboð á næstu vikum og mánuðum. Það er spurning hvort hann sé ekki á blaði hjá KSÍ varðandi yfirmann fótboltamála sem við erum alltaf að ræða,“ sagði Elvar Geir Magnússon í Fótbolta.net þættinum.

Tómas Þór telur að Grétar geti fengið meira spennandi starf en það sem er í boði hjá KSÍ. Hann vonar þó að símtal í Grétar eigi sér stað.

„Annað væri mjög skrítið – ef þau taka að minnsta kosti ekki símtalið á Grétar. Ég held að hann sé í mjög miklum möguleika að fá stærra starf og meira spennandi. Þó það sé auðvitað spennandi að stýra uppbyggingunni hér heima. Þegar þú ert búinn að smakka af leikmannamálum í Premier League, þá held ég að þú viljir halda þér á stóra sviðinu. En ég trúi ekki öðru en að Vanda (Sigurgeirsdóttir) taki allavega símtalið á Grétar og fái að minnsta kosti einhverjar ráðleggingar.“

Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ / ©Anton Brink 2021
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Karólína tjáir sig um sögusagnirnar og gefur sterkar vísbendingar

Karólína tjáir sig um sögusagnirnar og gefur sterkar vísbendingar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Samtal Liverpool við enska landsliðsmanninn heldur áfram í vikunni

Samtal Liverpool við enska landsliðsmanninn heldur áfram í vikunni
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Valinn besti leikmaður liðsins en vill nú fara – Alls ekki hrifinn af nýja stjóranum

Valinn besti leikmaður liðsins en vill nú fara – Alls ekki hrifinn af nýja stjóranum
433Sport
Í gær

Óttast ekki að missa sæti sitt ef Williams kemur í sumar

Óttast ekki að missa sæti sitt ef Williams kemur í sumar