PSG hefur hafið samtalið við Zinedine Zidane um hvort hann hafi áhuga að snúa til heimalandsins og taka við franska stórliðinu. AS á Spáni segir frá.
Mauricio Pochettinho þjálfari PSG er klár í að taka við Manchester United og er í raun sagður mjög spenntur fyrir því. The Times segir frá þessu.
Zidane vill ekki taka við United en eiginkona hans vill búa á Spáni eða í Frakklandi.
Pochettinho verður í Manchester síðar í dag þegar PSG kemur til borgarinnar, liðið á leik við Manchester City á morgun.
Stjóranum frá Argentínu líður ekki vel í París en fjölskylda hans er búsett í Englandi eftir dvöl hans þar í landi.