Ísland og Armenía gerðu 1-1 jafntefli í undankeppni HM 2022 í kvöld.
Armenar komust yfir á 35. mínútu með marki Kamo Hovhannisyan. Gestirnir fengu þá allt of mikinn tíma á boltanum við teig Íslendinga. Lauk það með fyrirgjöf sem uppskar mark Hovhannisyan. Þess skal getið að áður en Armenar skoruðu mark sitt átti Ísland augljóslega að fá hornspyrnu hinum megin á vellinum. Myndbandsdómgæsla dæmdi marki þó ekki af.
,,Línuvörðurinn var mjög illa staðsettur í þessu atviki. Maður skilur ekki af hverju hann sér þetta ekki því markmaðurinn er bara langt út af,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir um atvikið á RÚV eftir leik.
,,Þetta er ekkert boðlegt í alþjóðlegri knattspyrnu, að línuverði skildi missjást þetta mikilvæga atvik,“ bætti Arnar Gunnlaugsson þá við.
Atvikið má sjá hér fyrir neðan.
„Það er ekki boðlegt í alþjóðlegri knattspyrnu að línuverðinum skuli missjást þetta mikilvæga atvik," sagði Arnar Gunnlaugsson í hálfleik. En boltinn fór augljóslega út af rétt áður en Armenar skoruðu markið í fyrri hálfleik. pic.twitter.com/Hcui3bMb7H
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 8, 2021