Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Pepsi-Max deildar liðs Leiknis Reykjavíkur, verður gestur í þættinum 433.is sem verður sýndur á Hringbraut í kvöld. Þar mun hann meðal annars ræða markvarðarstöðu félagsins en Guy Smit, sem varði mark Leiknismanna á síðasta tímabili, hefur samið við Val.
Þar sem að Smit er farinn á Hlíðarenda hafa vaknað upp spurningar um framtíð Hannesar Þórs Halldórssonar hjá Val og talið líklegt að hann muni skipta um félag fyrir næsta tímabil.
Hannes er uppalinn hjá Leikni og spilaði um tíma með félaginu og Sigurður segir að það væri heimskulegt af Leiknismönnum að reyna ekki að fá Hannes til að snúa aftur heim.
,,Það væri mjög heimskulegt ef við myndum ekki tékka á besta markmanni landsins. Við munum alveg pottþétt skoða stöðuna,“ sagði Sigurður Heiðar, þjálfari Leiknis R., í þættinum 433.is sem verður sýndur í kvöld.
Leiknir endaði 8. sæti Pepsi-Max deildarinnar á nýafstöðnu tímabili með 22 stig. Hannes yrði góð viðbót við liðið en hann er einn reyndasti markvörður landsins og talinn vera einn sá besti í sögunni. Hannes á að baki 205 leiki í efstu deild hér á landi auk 77 A-landsleikja fyrir Íslenska karlalandsliðið.
Þátturinn 433.is verður á dagskrá á sjónvarpsstöðinni Hringbraut klukkan 20:00 í kvöld.