fbpx
Föstudagur 12.desember 2025
433Sport

Hinn rándýri Davíð sakaður um taktlausa hegðun

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 22. október 2021 08:27

Mynd: blikar.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Davíð Örn Atlason varnarmaður Breiðabliks er að öllum líkindum á leið aftur í Víking eftir erfitt ár í Kópavogi. Breiðablik borgaði fleiri milljónir fyrir Davíð síðasta tímabil.

Davíð kom meiddur til Breiðabliks og komst aldrei í gang. Þegar Davíð hafði náð heilsu hafði Óskar Hrafn Þorvaldsson náð að búa til frábæran bakvörð úr Höskuldi Gunnlaugssyni.

Breiðablik og Víkingur voru að keppast um sigur í efstu deild karla. Breiðablik missteig sig undir restina og Víkingur tók þann stóra. Víkingur varð svo bikarmeistari um síðustu helgi þar sem Davíð Örn var mættur í stúkuna að styðja Víkinga.

„Dr. Football samfélagið er mjög öflugt. Þeir skipta sér oft af málum sem þeir eiga ekki að skipta sér af, ég fékk ábendingar um að Davíð Atlason hefði mætt með Víkingum á bikarúrslitin gegn Skaganum. Pirrar Hafliðason ekki neitt,“ sagði Hjörvar Hafliðason stjórnandi Dr. Football um málið í gær.

Hjörvar segir hins vegar að hegðun Davíðs sé taktlaus nú þegar hann reynir að losna frá Blikum. „Ég átta mig á því að það er taktlaust. Ég var fyrirliði Breiðabliks 2006 og þá var ég ekki að mæta á HK leiki, þá er maður ekki að bögga lið sem er óþarfi að bögga þegar maður er leikmaður. Ég get skilið hann eða Blika sem eru ósáttir,“ sagði Hjörvar.

Hrafnkell Freyr Ágústsson lagði þá orð í belg um málið. „Þetta er liðið sem var í samkeppni við Breiðablik um titilinn,“ sagði Kötturinn Keli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Tólf félög vilja Mainoo en hann er búinn að velja

Tólf félög vilja Mainoo en hann er búinn að velja
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Fær fólk til að tala með því að skipta um umboðsmann

Fær fólk til að tala með því að skipta um umboðsmann
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Elías Már sagður vera að skrifa undir í Víkinni

Elías Már sagður vera að skrifa undir í Víkinni
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Bellingham tjáir skoðun sína á Alonso

Bellingham tjáir skoðun sína á Alonso
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Vilja fá framherja Manchester United í janúar

Vilja fá framherja Manchester United í janúar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stjóri Chelsea áhyggjufullur – Segir þá eiga í vandræðum með álagið

Stjóri Chelsea áhyggjufullur – Segir þá eiga í vandræðum með álagið
433Sport
Í gær

Leitar til kraftaverkamanns til að eiga möguleika á því að komast á HM

Leitar til kraftaverkamanns til að eiga möguleika á því að komast á HM
433Sport
Í gær

Garðar furðar sig á því að KSÍ hafi rekið þennan starfsmann í skjóli nætur – „Að mínu mati er verið að byrja á röngum enda“

Garðar furðar sig á því að KSÍ hafi rekið þennan starfsmann í skjóli nætur – „Að mínu mati er verið að byrja á röngum enda“