fbpx
Föstudagur 23.janúar 2026
433Sport

Neville harðlega gagnrýndur eftir að hann gekk allt of langt í beinni

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 9. janúar 2026 19:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hegðun Gabriel Martinelli í markalausu jafntefli Arsenal og Liverpool í gærkvöldi hefur vakið mikla reiði, ekki síst hjá Gary Neville, fyrrverandi varnarmanni Manchester United og sérfræðingi Sky Sports, sem sagði framgöngu Brasilíumannsins skammarlega.

Atvikið átti sér stað á lokasekúndum leiksins þegar Conor Bradley, bakvörður Liverpool, datt illa og virtist meiðast alvarlega á hné. Skömmu síðar gekk Martinelli að Bradley, henti boltanum að honum og ýtti honum af vellinum til að reyna að halda leiknum áfram.

Neville lét í sér heyra í beinni útsendingu. „Ég er hreinlega brjálaður út í Martinelli. Ég skil ekki hvernig Liverpool-mennirnir gjörsamlega lömdu hann ekki,“ sagði hann og bætti síðar við að Martinelli hefði hagað sér eins og fífl.

Ummælin vöktu hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum, þar sem margir töldu Neville ganga of langt. „Martinelli var klárlega í órétti, en það er galið að Neville hvetji til þess að ráðist verði á hann,“ skrifaði einn netverji og margir tóku undir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gaf leikmönnum frí fyrir átökin gegn United um helgina

Gaf leikmönnum frí fyrir átökin gegn United um helgina
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Lærisveinar Freys komu þrisvar til baka – Sterkur sigur Villa í Tyrklandi

Lærisveinar Freys komu þrisvar til baka – Sterkur sigur Villa í Tyrklandi
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Staðfestir yfirvofandi brottför frá Manchester United – Birta hjartnæmt myndband

Staðfestir yfirvofandi brottför frá Manchester United – Birta hjartnæmt myndband
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Eltast við enska landsliðsmanninn vegna meiðsla

Eltast við enska landsliðsmanninn vegna meiðsla