Mál Guðlaugs Victors Pálssonar er enn til umræðu innan knattspyrnusamfélagsins hér á landi. Guðlaugur dró sig úr landsliðshópi Íslands í miðju landsliðsverkefni fyrir leik liðsins gegn Liechtenstein sem fór fram í gær.
Málið var rætt í hlaðvarpssþættinum Dr.Football í dag og Hjörvar Hafliðason vill meina að búið sé að blása málið allverulega upp. Hann skilur ákvörðun Guðlaugs sem hefur verið tæpur vegna meiðsla að undanförnu og misst af leikjum með félagsliði sínu Schalke.
„Knattspyrnusamband Íslands á ekki rassgat inni hjá Guðlaugi Victori Pálssyni. Þetta er maður sem komst í 73 manna hóp Heimis Hallgrímssonar fyrir HM 2018. Mér finnst KSÍ ekki geta sagt neitt við þenna gæja. Hann er að spila með Schalke sem er langstærsti klúbburinn af þeim klúbbum sem aðrir leikmenn í landsliðinu eru að spila með. Mynduð þið ekki fórna einum leik á móti leigubílstjórum frá Liechtenstein til þess að festa sæti þitt hjá klúbbnum. Ég fatta ekki málið sem er gert úr þessu,“ sagði Hjörvar í hlaðvarpsþættinum Dr. Football.
Hrafnkell Freyr Ágústsson, annar af gestum þáttarins tók undir þessi orð Hjörvars. „Það er ótrúlega mikið gert úr þessu,“ sagði Hrafnkell.
Arnar Sveinn Geirsson, forseti leikmannasamtaka Íslands, var líka gestur í þættinum og hann gat ekki tekið undir þessar útskýringar Hjörvars og Hrafnkells.
Arnar vill meina að Arnar Þór, landsliðsþjálfari Íslands, hefði getað staðið sig betur í þessum aðstæðum.
„Það er tvennt í þessu. Arnar Þór Viðarsson, virðist vera algjörlega ófær um að svara einni einustu spurningu sem kemur til hans. Hann er bara alltaf í veseni með svörin sín. Hann er búinn að vera alveg svakalega slæmur fyrir íslenskan fótbolta hvað varðar það að svara fyrir það sem er búið að vera í gangi. Svaraðu þessu bara almennilega.“
„Svarið hans þegar hann er spurður út í Guðlaug, það er það sem býr til þetta vesen. Það er það sem býr til þetta havarí af því að það fara allir að spurja sig ‘afhverju svarar hann því ekki hvað gerðist?’ Þegar þjálfarinn segir þetta þá lítur þetta út eins og það sé eitthvað ósagt,“ sagði Arnar Sveinn.
Arnari Sveini finnst að Guðlaugur Victor hefði átt að klára verkefnið með landsliðshópnum. „Mér finnst að Guðlaugur, ef hann er tæpur eða þarf að vera með liðinu sínu og allt þetta ,eigi samt bara að klára þetta verkefni. Hann þarf ekkert að spila leikinn en kláraðu verkefnið með hópnum,“ sagði Arnar Sveinn Geirsson, forseti leikmannasamtaka Íslands í Dr.Football í dag.