fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
433Sport

Stuðningsmenn United áhyggjufullir og bíða frétta af Varane

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 11. október 2021 08:26

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frakkar eru Þjóðadeildarmeistarar eftir sigur á Spánverjum í úrslitaleiknum í A-deild í gær. Fyrri hálfleikur var rólegur og var markalaust eftir hann.

Í þeim seinni var töluvert meira fjör. Mikel Oyarzabal kom Spánverjum yfir á 64. mínútu með marki eftir stungusendingu frá Sergio Busquets. Frakkar voru ekki lengi að jafna. Það gerði Karim Benzema á 66. mínútu með frábærri afgreiðslu. Kylian Mbappe skoraði sigurmark leiksins fyrir Frakka á 80. mínútu. Hann fékk sendingu inn fyrir frá Theo Hernandez. Það var rangstöðulykt að markinu en myndbandsdómgæslan setti ekki út á það.

Stuðningsmenn Manchester United eru áhyggjufullir eftir leikinn en Raphael Varane fór meiddur af velli. Þesi franski varnarmaður fór af velli í fyrri hálfleik.

Varane gekk í raðir United í sumar og hefur átt ágætis spretti í hjarta varnarinnar. Nú er möguleiki á að hann verði talsvert lengi frá.

Fyrir er Harry Maguire meiddur og því gæti vantað báða mennina sem Ole Gunnar Solskjær vill hafa í byrjunarliði sínu um helgina. United mætir Leicester á laugardag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Tveir handteknir grunaðir um að hafa nauðgað konu á föstudag

Tveir handteknir grunaðir um að hafa nauðgað konu á föstudag
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmenn Coventry steinhissa á því hversu lélegur þessi leikmaður United var

Leikmenn Coventry steinhissa á því hversu lélegur þessi leikmaður United var
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Búið að ganga frá launapakkanum sem Þorvaldur fær í Laugardalnum – Þetta þénaði Vanda í starfinu

Búið að ganga frá launapakkanum sem Þorvaldur fær í Laugardalnum – Þetta þénaði Vanda í starfinu
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Arsenal tók Chelsea og slátraði þeim – Tylltu sér á toppinn

Arsenal tók Chelsea og slátraði þeim – Tylltu sér á toppinn
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Bayern byrjað að ræða við Rangnick um að taka við

Bayern byrjað að ræða við Rangnick um að taka við
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Sjö stjórar til skoðunar hjá United – Efast um nokkra sem eru á blaði

Sjö stjórar til skoðunar hjá United – Efast um nokkra sem eru á blaði