Íslenska karlalandsliðið gerði jafntefli við Armeníu á Laugardalsvelli í undankeppni HM 2022 í kvöld. Hér neðst má sjá hvað íslenska þjóðin hafði upp á að bjóða á Twitter eftir leik.
Leikurinn fór nokkuð rólega af stað. Fyrsta færi Íslands fékk Albert Guðmundsson eftir rúmlega tíu mínútur þegar hann skaut framhjá, þó úr nokkuð þröngri stöðu.
Nokkrum mínútum síðar gerði Jón Dagur Þorsteinsson mjög vel úti vinstra megin og bjó að lokum til fínt færi fyrir Viðar Örn Kjartansson. Sá síðarnefndi gat þó ekki gert sér mat úr því.
Armenar komust yfir á 35. mínútu með marki Kamo Hovhannisyan. Gestirnir fengu þá allt of mikinn tíma á boltanum við teig Íslendinga. Lauk það með fyrirgjöf sem uppskar mark Hovhannisyan. Þess skal getið að áður en Armenar skoruðu mark sitt átti Ísland augljóslega að fá hornspyrnu hinum megin á vellinum. Myndbandsdómgæsla dæmdi marki þó ekki af.
Stuttu síðar kom Henrikh Mkhitaryan sér í fína stöðu til að bæta við marki. Hann skaut þó framhjá.
Staðan í hálfleik var 0-1.
Eftir nokkurra mínútna leik í seinni hálfleik átti íslenska liðið góða sókn sem lauk með því að Þórir Jóhann Helgason lagði boltann fyrir á Ísak Bergmann Jóhannesson. Skot þess síðarnefnda fór þó beint á markvörð gestanna.
Við tók rólegur kafli, ekki benti margt til þess að Ísland myndi jafna. Á 77. mínútu jafnaði Ísak hins vegar leikinn. Albert kom boltanum þá út til hægri á Birki Má, hann kom sér inn á teiginn og renndi boltanum út á Ísak sem afgreiddi hann yfirvegað í markið.
Íslenska liðið efldist ekki nægilega mikið við jöfnunarmarkið, var ekki nálægt því að finna sigurmark. Armenar ógnuðu meira fram á við í lokin. Lokatölur hins vegar 1-1.
Vonbrigði að vinna ekki slaka Armena en frammistaðan bauð ekki upp á meira. Vondir tímar hjá liðinu okkar og framundan mikil kynslóðarskipti sem taka sinn tíma og þolinmæði. Ljósu punktarnir Jón Dagur og Ísak. Framtíðar lykilmenn.
— Guðmundur Hilmarsson (@GummiHilmars) October 8, 2021
Ja yngstur (staðfest)
— Sigurđur Gìsli (@SigurdurGisli) October 8, 2021
Kannski er það bara ég en mér sýnist þetta landslið alveg geta spilað fótbolta.
Fullt af ungum guttum og spennandi tímar framundan.
Ísak er á öðru leveli. Rosalegur
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) October 8, 2021
Frábært jöfnunarmark! En Armenar eru vel skipulagðir eins og við var búist. Það er samt draumur að verjast þegar mótherjinn raðar 6-7 mönnum utan á blokkina og lætur boltann ganga hægt. 25 mín vs 65 mín. Það á ekki að vera auðvelt að verjast á Laugardalsvelli pic.twitter.com/y8u55Zzj9Q
— Bjarki Már Ólafsson (@bjarkiolafs) October 8, 2021
Ég vil fá einlægan Arnar Þór. Ekki koma í viðtal og segja að Armenar hafi verið fràbærir í leiknum og þeir séu gott fótbotalið þvi það sáu það allir að þeir gátu ekkert í þessum leik og eru ekki gott fótboltalið. Hættum að fegra hlutina og tölum hreint út. Það er byrjun.
— Rikki G (@RikkiGje) October 8, 2021
Elías Rafn flottur í kvöld. Ruggið í fyrsta viðtalinu eftir leik gott. Meira stress í cameru en á vellinum. pic.twitter.com/0vKRXm6ME9
— Hörður S Jónsson (@hoddi23) October 8, 2021
Ég held að Armenarnir myndu komast upp með að drippla helvítis tuðrunni. Standardinn á þessu maaar
— Árni Jóhannsson (@arnijo) October 8, 2021
Djöfull er hræðileg mæting í Laugardalinn…úff
— Guðlaugur Valgeirsson (@GulliValgeirs) October 8, 2021
Lélegu liðin fá lélegu dómarana. Erum því miður aftur komin þangað.
— Henry Birgir (@henrybirgir) October 8, 2021
Er þetta fótboltaleikur eða jarðarför?
— tobbitenor (@tobbitenor) October 8, 2021
Held ég hafi aldrei verið í lélegri stemningu á landsleik. Það er eiginlega upplifun að vera hérna.
— Henry Birgir (@henrybirgir) October 8, 2021
VAR?????
— Nikola Djuric (@NikolaDejan) October 8, 2021
Djöfull er þetta lélegt í Laugardalnum
— Guðlaugur Valgeirsson (@GulliValgeirs) October 8, 2021
So VAR doesn't check if the ball has gone out of play by half a metre, fair enough then…
— Lucas Arnold (@FotboltiLucas) October 8, 2021