fbpx
Þriðjudagur 10.febrúar 2026
433Sport

Chelsea gefst ekki upp

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 3. ágúst 2021 12:30

Romelu Lukaku.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Chelsea ætlar að gera annað tilboð í framherjann Romelu Lukaku hjá Inter. Ítalska félagið hafnaði fyrsta tilboði þeirra. Ítalski blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio greinir frá þessu.

Tilboði Chelsea í hinn 28 ára gamla Lukaku upp á 100 milljónir evra var hafnað. Evrópumeistararnir voru einnig tilbúnir til þess að senda bakvörðinn Marcos Alonso til Inter.

Nýtt tilboð mun hjlóða upp á 120 milljónir evra. Di Marzio tekur ekki fram hvort að Alonso verði einnig hluti af því tilboði.

Chelsea vill bæta við sig framherja í heimsklassa. Það er Lukaku klárlega. Belginn skoraði 24 mörk í Serie A á síðustu leiktíð er Inter varð Ítalíumeistari.

Enska félagið gæti boðið Lukaku betri laun en hann er með hjá Inter. Hann þénar um 15 milljónir evra á ári í Mílanó.

Það gæti reynst erfitt fyrir Inter að hafna góðu tilboði í Lukaku þar sem fjárhagur félagsins er ekki á svo góðum stað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Liverpool tilbúið að selja í sumar og hafa skellt verðmiða á hann

Liverpool tilbúið að selja í sumar og hafa skellt verðmiða á hann
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Haaland uppljóstrar því hvað hann sagði við Szoboszlai fyrir vítaspyrnuna

Haaland uppljóstrar því hvað hann sagði við Szoboszlai fyrir vítaspyrnuna
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stjarnan virðist hafa komið upp um sig – Notar líklega ólöglega þjónustu

Stjarnan virðist hafa komið upp um sig – Notar líklega ólöglega þjónustu
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Fullyrðir að United sé farið í ferli að ráða stjóra til framtíðar – Carrick á séns

Fullyrðir að United sé farið í ferli að ráða stjóra til framtíðar – Carrick á séns
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Jordan Henderson í áfalli í beinni útsendingu – „Ekki séns! Hver ákveður þetta?“

Jordan Henderson í áfalli í beinni útsendingu – „Ekki séns! Hver ákveður þetta?“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Arteta horfir til Hollands en fær samkeppni – Hefur eiginleika sem svipa til goðsagnar Chelsea

Arteta horfir til Hollands en fær samkeppni – Hefur eiginleika sem svipa til goðsagnar Chelsea
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Taka fram úr Arsenal í baráttunni

Taka fram úr Arsenal í baráttunni
433Sport
Í gær

Hárprúði stuðningsmaðurinn aldrei verið nær endamarkinu – Opinberar hvert planið er annað kvöld

Hárprúði stuðningsmaðurinn aldrei verið nær endamarkinu – Opinberar hvert planið er annað kvöld